Morgunblaðið - 18.07.1979, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. JÚLÍ1979
Bikarinn
í kvöld
TVEIR LEIKIR íara fram í kvöld í átta liða úrslitum í bikarkeppni
KSÍ. Á efri vellinum í Laugardal leika Fram og Breiðablik og verður
það án efa spennandi viðureign. Breiðablik hefur svnt góða leiki í 2.
deildinni í sumar og oft bitið hressilega frá sér. A Akranesi mæta
heimamenn liði Keflavíkur og þar verður án efa ekkert gefið eftir ef
að likum lætur. Leikur Vals og KR hefur verið færður fram á
fimmtudagskvöld. Það er orðið mikið fjárhagslegt atriði fyrir
knattspyrnudeildirnar að vel gangi f bikarnum þvf að úrslitaleikur-
inn gefur ávallt dágóðan skilding í aðra hönd. — þr.
Leikurinn við dauðann, er kappaksturinn oft kallaður.
Discovery hin nýja
frábæra plata með
Electric Light
Orchestra er nú komin
aftur í verslanir. Það
þarf engum blöðum um
það að fletta að E.L.O.
er ein albesta
popphljómsveit heims
eins og viðtökur
Discovery sanna
reyndar.
Discovery fæst nú aftur
í verslunum okkar bæði
á plötu og kassettu.
Líttu við eða hringdu í
einhverja af verslunum
okkar. Það er okkur
sönn ánægja að lið-
sinna þér.
Discovery
Skálaði
í ananas
í stað
kampavíns
Heimsmeistarakeppnin í kapp-
akstri, formúlu 1, er vel á veg
komin. Um sfðastliðna hegli fór
fram Grand Prix-kappaksturinn
á Silverstone-brautinni í Bretl-
andi og sigraði Svisslendingur-
inn Clay Regazzoni en hann ók
vegalengdina, sem var 320,89 km,
á 1:26:11:7 eða með 223,37 km
meðalhraða á klukkustund. Reg-
azzoni, sem ekur á Saudia Will-
iams-bíl, slapp að mestu við
óhöpp f keppninni en það sama
var ekki uppi á t engingum hjá
mörgum öðrum frægum ökum-
önnum sem urðu að hætta vegna
vélabilana og ýmisa annarra er-
fiðleika.
Annar í keppninni varð Rene
Arnoux, Frakklandi, á 1:26:35:45
en hann ekur á Renault. Þriðji
varð Pierre Jarier á Tyrrell á
1:26:25:34.
Eftir keppnina fagnaði Regazz-
oni sigrinum með því að drekka
ananassafa í stað kampavíns eins
og venjan er, þar sem hann vildi
ekki móðga konungsfjölskyldu
Saudi Arabíu sem fjármagnar
kappakstursbifreið hans og út-
gjöld.
Staðan í heimsmeistarakeppn-
inni í kappakstri er nú þessi:
Jody Scheckter, Suður-Afríku
32 stig, Gilles Villeneuve, Kanada
26 stig, Jacques Laffite, Fra-
kklandi 24 stig, Patrik Depallier,
Frakklandi og Carlos Reutemann,
Argentínu 20 stig, Clay Reggazz-
oni, Sviss 16 stig, Mario Andretti,
Bandaríkjunum og Jean Pierre
Jarier, Frakklandi 12 stig, John
Watsson, Bretlandi 11 stig.
Maier að
hressast
KNATTSPYRNUKAPPINN
Sepp Maier er nú óðum að
hressast eftir slys það sem hann
varð fyrir í fyrri viku. Er hann
orðin hrókur alls fagnaðar á
sjúkrahúsinu þar sem hann ligg-
ur, og að sögn iækna ætti hann að
geta hafið knattspyrnuiðkanir að
nýju eftir um það bil þrjá mán-
uði.